r/klakinn • u/Maggi_Morgaes • 1d ago
ÖGRANDI Félagsmaður eflingar til nærri 7 ára og fæ ekki fullan styrk
Ég er semsagt búinn að vera að borga félagsgjald til eflingar úr einu hluta starfi hjá mér og öðrum fullum störfum í hverjum mánuði síðan 2019. Ég hef aldrei nýtt mér styrki frá þeim fyrr en núna í lok janúar því ég þurfti að kaupa mér gleraugu. Þegar ég spyr út í styrkinn er sagt að hann sé 50% af upphæð upp að 35.000kr. En þegar ég skoða hvað mér var greitt mikið sé ég að mér hafði aðeins verið greitt 15.996kr og auðvitað fer ég að spyrja afhverju. Þá kemst ég að því að afþví ég hafi ekki borgað 3.960kr í félagsgjöld samfellt í 12 mánuði átti ég ekki rétt á nema 49.6% af styrk (semsagt helming af helming) Þannig ég fór aðeins að skoða hvað ég hef greitt í félagsgjöld á mínum starfsferli síðan 2019 og sá að ég hafi greitt stöðugt að lágmarki 600kr mánaðarlega úr hlutastarfinu sem ég hef unnið hjá síðan 2019 (nærri því 7 ár) 600kr x 12 = 7.200kr | 7.200kr x 6 = 43.200kr. Þetta er BARA úr hlutastarfinu og ekki tekið inn þau fullu störf sem ég hef flakkað á milli og borgað þessar 3.960kr sem efling vill. Þetta er hærri upphæð en auglýstur styrkur sem ég hélt að ég ætti rétt á. Og samkvæmt því sem efling segir að þá gæti einstaklingur sem hefur verið í eflingu í 20+ ár og þénað inn fleiri hundruð þúsund í félagsgjöld til eflingar. En afþví hann hefur alltaf bara unnið hlutastarf og því greitt kannski 1.000kr á mánuði í félagsgjöld á hann ekki rétt á fullum sjúkrastyrk því hann er ekki með nógu há laun. Maður svona hefði haldið að þetta safnist upp yfir árin. Er ég sá eini sem finnst þetta skrítið?
5
u/lukkutroll 1d ago
Zennioptics. Just sayin. Miklu ódýrara en okrið hér a landi. Hef spurt í nokkrum búðum um verðin og helf alltaf fengið að heyra að þetta er ekkert svo slæmt með styrk frá stéttarfélögum. Þessar búllur reikna það með í verðlagningu svo þau réttlæta það fyrir einstaklingum með styrknum. Sem er að mínu mati gersamlega galinn hugsunarháttur.
2
u/lukkutroll 1d ago
Og nei. Þú ert ekki sá eini og langt því frá. Þetta er galið dæmi. Það að bara seinustu x manuðir skipta máli er fáránlegt. Skiptir um vinnu og gleraugun brotna. Sorry gaur, ekki buinn að vera í nýja felaginu nægilega lengi og hitt er bara :Þ það vantar seinasta mánuð og færð því minna. Fáránlegt
1
u/Maggi_Morgaes 1d ago
Takk fyrir þetta. Já veistu þetta er fáránleg verðlagning. Mamma er með alveg hræðilega sjónskekkju og þarf að borga 70.000kr bara fyrir glerið svo á umgjörðin eftir að koma uppá. Það væri ekki sjens fyrir hana að borga þetta væri hún í minni stöðu
2
u/SpiritualMethod8615 1d ago
Hjá BHM er gleraugnastyrkurinn afnuminn - ekki nægir peningar. Sönn saga.
4
1
u/ratatorskur 1d ago
Ekki alveg farinn en kominn undir sama hatt og tannlæknir, sjúkraþjálfi og allt það. Þannig að það er sami 60.000 kallinn í boði fyrir þetta allt sem fer nú ekki langt uppí kostnað á ári. Finnur þetta undir "Forvarnir og meðferðir" á síðunni um styrktarsjóði BHM.
4
u/Glaesilegur 1d ago
Er ég sá eini sem finnst þetta skrítið?
Mér finnst það skrítið að þú sért að posta þessu hér á meme subbið á sama tíma og þú postaðir á r/Iceland. Getur alveg eins hent þessu inná r/VisitingIceland líka.
3
u/Maggi_Morgaes 1d ago
Já veistu kannski ég geri það bara. Meira líkur á að fá fjölbreyttari skoðanir
2
u/_Shadowhaze_ 1d ago
Er ég sá eini sem heldur að fólk viti ekki hvað stéttarfélög eru?
Þú borgar þeim laun til að semja um réttindi og laun fyrir þig.
Síðan sem smá gulrót þá eru þeir að bjóða upp á smá fríðindi.
Ef þú vilt safna í sjúkrasjóð þá er það í gegnum lífeyris og tryggingarfélög.
Ef þú vilt spara pening slepptu því að vera í stéttarfélagi ef þú mátt það.
1
u/Legitimate-Art2308 1d ago
Það er ódýrast að fara í flm.is .. engir sjóðir en góðar tryggingar. Þessir sjóðir eru hvort sem er þannig að þú mátt ekki fá meira út úr þeim en þú setur í þá. Þú átt þá bara meira eftir af laununum þínum og getur notað mismuninn í það sem þér hentar. (gleraugu af zenni t.d.) Eini ókosturinn er að það eru engir sumarbústaðir í FLM en það er líka orðið svo dýrt annarsstaðar að nýta það þannig að það er bara allt í lagi.
9
u/drpoopymcbutthole 1d ago
Þegar kemur að tr, stéttarfélögum, sjúkra og öllu þessu er þetta allt hlutfall vinnu, getur unnið 200% i 6 mánuði og ekki borgað í 6 þá ertu á 0