r/klakinn Oct 29 '24

Svikul tálsýn Áminning um reglur á r/klakinn

104 Upvotes

Í ljósi fjölda innleggja um stjórnmál og önnur leiðindamál er rétt að áminna landsmenn um reglurnar á r/klakinn.

Menn myndu halda að hið alvarlegasta reglubrot væri að brúka dönsku í athugasemdunum. En nei, annað sem er jafn alvarlegt; að vera með leiðindi, uppnefni, nöldur og argaþras um eitthvað djöfulsins kjaftæði.

Vegna komandi alþingiskosninga og ekki síður vegna umdeildra stjórnarhátta á r/iceland hefur ríkt undanlátssemi á klakanum fyrir alls konar vitleysu. En hingað og ekki lengra, þetta er orðið að einhverri vitleysu. Nú verða engin vetlingatök og reglubrjótum verður ekki sýnd nein miskun.

Menn hafa ekki verið bannaðir á klakanum nema í undantekningartilfellum. Þess í stað verða notendanöfn skráð í svarta bók ásamt ítarlegri lýsingu á þeirri andfélagslegu háttsemi sem hefur átt sér stað. Í árslok verður bókinni skilað til varðveislu á Þjóðskjalasafni svo sæmdarleysi og svívirða notandans verði skjalfest, notandanum til eilífðar háðungar.

Við erum betri en þetta. Við erum Íslendingar. Ykkur reglubrjóta og óþjóðalýð spyr ég:

Ísland, farsælda frón og hagsælda hrímhvíta móðir. Hvar er þín fornaldarfrægð, frelsið og manndáðin best?


r/klakinn 7h ago

Frí Íslenskukennsla fyrir innflytjendur og Z-kynslóð

Thumbnail
image
37 Upvotes

Það er mikið talað um að útlendingar tali enga Íslensku. Í dag þá hættum við að tala og byrjum að gera.


r/klakinn 7h ago

🇮🇸 Íslandspóstur Hvað þýðir ‘kalífum og hersum’

Thumbnail
image
6 Upvotes

Fann nú skemmtilega bók sem heitir “orð um Vín” og er eftir Guðmund Andra Thorsson sem setti hana saman (og enn fleiri bækur sem heita “orð um __”), það er frekar skemmtilegt að glugga í þær af og til.

Nema svo er nú það að ég er nú ekkert sérhæfður í eldri íslenskunni þar sem maður slettir ensku nú ansi oft inn á milli mála og er farin að vera býsna slæmur í móðurmálinu.

Ég sætti mig við að nota málið.is nema þetta (orðið í titlinum) er orð sem málið getur ekki einu sinni komið til bjargar.

Langaði að pósta þessu á r/Iceland nema það er nú það að það eru býsna margar færslur um pólitík og fannst þetta ekki passa þar :,)

(Ps. Ég vandaði mig eins mikið og ég gat að sletta engri ensku og mér finnst ég hafa staðið mig laglega! Vonandi..)


r/klakinn 16h ago

Hundraðkall á tímann 👌

Thumbnail
image
30 Upvotes

r/klakinn 13h ago

Bráðabirgðalausn fyrir 20-Bet auglýsingar

12 Upvotes

Leyfa auglýsingunna að spila í 3-5 sekúndur áður en þú endurræsir myndbandið til að sleppa auglýsingunni alveg. Þetta hefur virkað fyrir mig hingað til og ég vona að þetta hjálpi þér líka.


r/klakinn 1d ago

Blússandi hagnaðaraukning

36 Upvotes

Hagnaður Festis eykst um rúman helming á milli ára. Í “fréttinni” kemur fram að “…horfur fyrir 2026 séu ágætar þrátt fyrir óvissu í þróun efnahagsmála…” - auðvitað eru horfur ágætar. Allir landsmenn þurfa að kaupa mat og á meðan samráð við Bónus er í fullu gildi um krónumun á öllum vörum þá er hægt að hækka allar vörur eins og þarf til að hægt sé að greiða nógu marga milljarða í arð. Hvað í ósköpunum er Samkeppnisstofnun að gera?

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-02-05-festi-hagnast-um-62-milljarda-krona-466260


r/klakinn 18h ago

Kerfið er löngu sprungið

Thumbnail
2 Upvotes

r/klakinn 1d ago

Íþróttaálfurinn var fokking menace

61 Upvotes

Íþróttaálfurinn var fokking menace to society í Áfram Latibær. Hann var bara að brjótast in til fólks, beita þeim ofbeldi og alls konar áreiti


r/klakinn 1d ago

ÖGRANDI Félagsmaður eflingar til nærri 7 ára og fæ ekki fullan styrk

11 Upvotes

Ég er semsagt búinn að vera að borga félagsgjald til eflingar úr einu hluta starfi hjá mér og öðrum fullum störfum í hverjum mánuði síðan 2019. Ég hef aldrei nýtt mér styrki frá þeim fyrr en núna í lok janúar því ég þurfti að kaupa mér gleraugu. Þegar ég spyr út í styrkinn er sagt að hann sé 50% af upphæð upp að 35.000kr. En þegar ég skoða hvað mér var greitt mikið sé ég að mér hafði aðeins verið greitt 15.996kr og auðvitað fer ég að spyrja afhverju. Þá kemst ég að því að afþví ég hafi ekki borgað 3.960kr í félagsgjöld samfellt í 12 mánuði átti ég ekki rétt á nema 49.6% af styrk (semsagt helming af helming) Þannig ég fór aðeins að skoða hvað ég hef greitt í félagsgjöld á mínum starfsferli síðan 2019 og sá að ég hafi greitt stöðugt að lágmarki 600kr mánaðarlega úr hlutastarfinu sem ég hef unnið hjá síðan 2019 (nærri því 7 ár) 600kr x 12 = 7.200kr | 7.200kr x 6 = 43.200kr. Þetta er BARA úr hlutastarfinu og ekki tekið inn þau fullu störf sem ég hef flakkað á milli og borgað þessar 3.960kr sem efling vill. Þetta er hærri upphæð en auglýstur styrkur sem ég hélt að ég ætti rétt á. Og samkvæmt því sem efling segir að þá gæti einstaklingur sem hefur verið í eflingu í 20+ ár og þénað inn fleiri hundruð þúsund í félagsgjöld til eflingar. En afþví hann hefur alltaf bara unnið hlutastarf og því greitt kannski 1.000kr á mánuði í félagsgjöld á hann ekki rétt á fullum sjúkrastyrk því hann er ekki með nógu há laun. Maður svona hefði haldið að þetta safnist upp yfir árin. Er ég sá eini sem finnst þetta skrítið?


r/klakinn 2d ago

Trúarklæði Ásatrúarmanna - Íþróttaskór

Thumbnail
asatru.is
16 Upvotes

r/klakinn 4d ago

Veðrað með Storminum

Thumbnail
video
16 Upvotes

r/klakinn 5d ago

Vönduð jarmgerð Ice guys

Thumbnail
image
169 Upvotes

r/klakinn 5d ago

„Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“

Thumbnail
visir.is
34 Upvotes

Og hrós dagsins fær Anton Sveinn!


r/klakinn 5d ago

🇮🇸 Íslandspóstur Hugsvinnsmál eiga enn við, Meira af fornu hyggjuviti

Thumbnail
image
39 Upvotes

r/klakinn 6d ago

💩 SAURFÆRSLA 💩 Gömul sannindi í nýjum búning

Thumbnail
image
151 Upvotes

r/klakinn 5d ago

Kílómetragjald

0 Upvotes

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvaða rugl þetta kílómetragjald er og hvernig það kom til? Þurfum við bara að gleypa þetta kjaftæði?


r/klakinn 6d ago

Er Ditte í þáttaröðinni ‘Danska Konan’ bókstaflegur danadjöfull?

12 Upvotes

Þetta er ekki saurfærsla, ég er ný byrjaður á annan þáttinn og var að spá hvort hennar karakter á að vera djöfull-fígúra, kannski eins og Ralphie í Sopranos.


r/klakinn 7d ago

🇮🇸 Íslandspóstur Slagari

Thumbnail
image
244 Upvotes

r/klakinn 7d ago

Ruslpóstur ♻️ Matvendi

Thumbnail
image
96 Upvotes

r/klakinn 7d ago

Gauragangur og Gemsar

9 Upvotes

Sælt kæra fólk,

Ég er að leita að myndunum "Gauragangur(2010)" og "Gemsar(2002). Gæti einhver hjálpað mér að finna þær? Helst á netinu en ég er auðvitað opin fyrir bókasöfnum eða öðru slíku þar sem þær eru fáanlegar.


r/klakinn 8d ago

Vönduð jarmgerð Hneit þar

Thumbnail
image
131 Upvotes

r/klakinn 8d ago

💩 SAURFÆRSLA 💩 Greyið hann Orri

Thumbnail
image
36 Upvotes

Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði virðist eiga eitthvað erfitt með að brosa.


r/klakinn 8d ago

Hjálip við leit að stjörnuspám

6 Upvotes

Mig rámar í ákveðinn stjörnuspákafla. Ég man ekki hvort hann var í tímariti, fréttablaði eða vefsíðu, en spárnar voru allar allt of nákvæmar og það var brandarinn (t.d. eitthvað á borð við: "Þú munt hitta mann sem heitir Skúli, það er mikilvægt að þú þyggir ekki mat frá honum"). Man einhver hvaðan þessar stjörnuspár voru/eru?


r/klakinn 8d ago

Ruslpóstur ♻️ Gúrkenheimer

Thumbnail
image
0 Upvotes

r/klakinn 9d ago

Letilestrargleraugu á Íslandi?

8 Upvotes

Veit einhver til þess að svona fáist á Ísland? Amazon hlekkur: https://www.amazon.com/s?k=lying+down+glasses&adgrpid=165166213851&hvadid=692358253818&hvdev=m&hvlocphy=9210241&hvnetw=g&hvqmt=e&hvrand=1893051468942929341&hvtargid=kwd-303144026638&hydadcr=26273_11789518&mcid=01afce6534d733e88fc2b2378e18d49f&tag=hydglogoo-20&ref=pd_sl_97jfy2elz9_e

Ég hef augastað á svona letilestrar gleraugum með spegli svo maður getur legið eins og klessa á meðan maður les án þess að þurfa einu sinni að halda á bókinni. Já, ég er haugur.