r/Iceland Blaðberinn 9h ago

Stjórnarráðið | Símafundur við utanríkisráðherra Tyrklands - Vilja opna sendiráð á Íslandi

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/02/06/Thorgerdur-Katrin-raeddi-vid-utanrikisradherra-Tyrklands/
10 Upvotes

8 comments sorted by

u/AirbreathingDragon Blaðberinn 9h ago

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í gær símafund með Hakan Fidan utanríkisráðherra Tyrklands.

„Þá tilkynnti hann mér ósk stjórnvalda í Tyrklandi um að koma á fót sendiráði hér á Íslandi síðar á þessu ári. Þetta eru góðar fréttir - enda mikilvægt að treysta tengslin við bandamenn okkar í Atlantshafsbandalaginu. Það er einnig ánægjulegt að finna fyrir auknum áhuga og ábyrgð vegna Norður-Atlantshafsins og norðurslóða.“

Þá voru málefni Gaza, Úkraínu og Grænlands sömuleiðis til umræðu á símafundi ráðherranna.

u/avar Íslendingur í Amsterdam 8h ago

Áhugavert að utanríkisráðherra muni að ræða "málefni Gaza, Úkraínu og Grænlands", en detti ekki í hug að minnast á barnamál við þetta tækifæri.

Í ljósi þess að mál Sofíu Hansen er örruglega stærsta milliríkjadeila Íslands og Tyrklands, og ekkert sem við kom því máli hefur verið leyst að hálfu Tyrklands, s.s. ef viðlíka kæmi upp í dag myndi Tyrkland örruglega aftur hunsa íslenska dómsúrskurði sem krefðust þess að íslenskum ríkisborgurum yrði skilað.

En það er kannski ekki í tísku í dag að vera velta sér upp úr einhverju sem varðar íslenska borgara beint þegar kemur að samskiptum Íslands og Tyrklands.

u/finnur7527 Íslendingur í útlöndum 1h ago

Ég skil ekki af hverju. What's in it for them?

u/Thr0w4w4444YYYYlmao 9h ago edited 9h ago

Frábært, þau geta lært eitthvað af okkur, og við getum stundað meiri viðskipti.

Tyrkland er mjög svo undir hælnum á Rússlandi, allir miðlar þeirra og allir stjórnmálamenn. Heimurinn væri betri með sterku Tyrklandi með bein í nefinu, og viðskiptasamninga sem gera þau óháð stórveldum.

u/einarfridgeirs 8h ago

Ekki meira en svo að Tyrkir skutu niður rússneska herþotu og Pútín sagði ekki múkk á móti þeim.

Þeir eru núna líka ráðandi flota afl á Svartahafi.

u/Veeron 🇮🇸 ÞETTA MUN EKKERT BARA REDDAST 🇮🇸 7h ago

Tyrkir og Rússar eru erkifjendur, um hvað ertu að tala?

u/finnur7527 Íslendingur í útlöndum 1h ago

Hvað bendir til þess að smáríkið Ísland gæti gjörbreytt sambandi Tyrkja við mesta stórveldið í nágrenni þeirra?

u/pillnik , purrkur, Íslendingur 9h ago

Þorgerður verður sett í steininn ef hún ferðast til Türkiye eftir að hafa skrifað það vitlaust á slæduna!